þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að setja okkur í það samhengi sem við erum að tala um þetta mál í, þ.e. þær breytingar sem hafa átt sér stað í heiminum og þær gerast hratt. Það eru í mínum huga beinlínis þjóðarhagsmunir að bregðast við þessum breytta heimi. Við höfum gert það hér þverpólitískt með nýrri varnar- og öryggisstefnu en við verðum líka að setja aðildarumsóknina í þetta samhengi. Hvað er ég að tala um? Í fyrsta lagi breytt pólitískt landslag alþjóðlega, nýja stöðu í öryggis- og varnarmálum vegna innrásar Rússa í Úkraínu, óvissu vegna utanríkisstefnu Trumps, tollastríðs og afstöðu Bandaríkjastjórnar til NATO og Evrópu. Þetta kallar á nánara samstarf líkt þenkjandi Evrópuríkja, þar á meðal okkar, þótt við ætlum áfram að hafa gott samstarf við Bandaríkin.
Í öðru lagi efnahagslega óvissu. Nú er stríð í Íran, olíuverð er komið yfir 100 dollara á tunnu en fyrir það var tollastríð og efnahagsumhverfi í heiminum sem af því leiðir sem getur dregið úr hagvexti og hefur gert það en líka stuðlað að verðbólgu. Það má segja að aukin útgjöld til varnarmála sem leiða af þessu líka og hugsanleg útbreiðsla átaka í Evrópu, auk okkar eigin innlendu innviðaskuldar, setji þrýsting á opinber fjármál hér heima en líka annars staðar.
Það eru sérstaklega viðsjárverðir tímar fyrir smáríki. Þetta er þriðji punkturinn og við hljótum að verða að hugsa um hann. Ég þarf ekki að minna á Grænland og Danmörku og þau mál, sem er ekki lokið. Ég ætla að halda því fram, og það með rökum, að aðildarviðræður einar og sér skapi stöðu til að bregðast við með Evrópusambandsríkjum ef staðan á alþjóðavettvangi þróast hratt til verri vegar og við þurfum skjól. Það að vera aðildarumsóknarríki er ákveðin öryggistrygging í sjálfu sér. Aðild að tollabandalagi tryggir einnig að einstök ríki standi ekki berskjölduð frammi fyrir hótunum stórvelda um að setja tolla á þau sem er notað núna í samtímanum til að setja pólitískan og efnahagslegan þrýsting. Átta ríki sem stóðu með Grænlandi og sendu þangað liðsafla á dögunum urðu fyrir hótunum frá Bandaríkjastjórn um tolla. Það var bara samstaða Evrópusambandsins sem hratt því.
Hver væri staða Íslands, eitt utan tollabandalaga í sambærilegri stöðu? Forseti Finnlands orðaði það þannig á dögunum: Ef einhver hótar okkur tollum þá segi ég: Komið þið bara, Finnar eru í Evrópusambandinu og við munum mæta ykkur sameiginlega. Út af þessari flóknu stöðu sem felur í sér marga neikvæða þætti hefur engu að síður teiknast upp mynd sem styrkir samningsstöðu Íslands. Í fyrsta lagi er aukinn stuðningur almennings innan ESB við aðildina í sambandinu, oft 70–80% í löndum þar sem þetta var áður járn í járn, 50% stuðningur og 50% andstaða. Nú er fólkið á götunni í þessum löndum sterkir stuðningsmenn ESB-aðildar og nefnir öryggið sem eitt af því sem skipti verulegu máli. Það er líka sterk staða, eins og við sjáum af yfirlýsingum núverandi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem mun halda á samningsgerðinni, m.a. vegna öryggis- og varnarmála, ekki í þeim skilningi að við séum að fara að breyta varnarsamstarfinu við Bandaríkin eða veru okkar í NATO, þvert á móti, heldur vegna þess að það kallar á samstöðu Evrópu og samvinnu innan Evrópustoðar NATO til að feta okkur saman inn í þessa nýju tíma. Þar þarf og á Ísland að vera við borðið og um það eru allir sammála sem að þessum varnar- og öryggismálum hafa komið.
Hér hefur verið komið inn á lykilhagsmuni Íslands og auðvitað munum við halda vel á þeim í þessum viðræðum, að sjálfsögðu. Ég vek sérstaklega athygli á samningsmarkmiðunum sem eru í greinargerð með þingsályktunartillögunni sem urðu til eftir mjög víðtækt samráð, að hluta til byggt á landsfundarályktun Framsóknarflokksins sem setti þrjú skilyrði við aðild að Evrópusambandinu en að þeim uppfylltum vildi Framsókn ganga inn, Framsókn undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Hvar er hann nú? Alla vega ekki í þessum sal og hann er búinn að vera úti á túni í allri þessari umræðu, algerlega úti á túni. Við verðum nefnilega að nálgast umræðuna út frá okkar þjóðarhagsmunum, út frá stöðunni í heiminum og út frá því sem skiptir almenning og fyrirtæki í þessu landi mestu máli. Hvað er það? Auðlindir og orka að sjálfsögðu, samkeppnishæfni atvinnulífs, aðgangur að alþjóðlegum mörkuðum, vextir og verðbólga. Þetta eru Evrópumál.
Samtök iðnaðarins birtu greiningu á síðustu vikum sem sýndi að hugvitsgreinar skila meiri útflutningi í íslenskt þjóðarbú en sjávarútvegur. Hafa samkeppnishæfni og hagsmunir hugvitsgreina verið nefnd í þessum sal í þessari umræðu? Þegar við sjáum að þessar mikilvægu greinar, sjávarútvegur og landbúnaður, eiga það sameiginlegt að þar hefur störfum stórfækkað á síðustu 25 árum þá vitum við og eigum að horfast í augu við að börnin okkar og komandi kynslóðir eiga kost á vel launuðum störfum, hvar? Í hugvitsgreinum, í skapandi greinum, í ferðaþjónustu og mörgum öðrum greinum sem eiga mjög mikið af samkeppnishæfni undir verðbólgu og vöxtum, aðgangi að mörkuðum og aðild að Evrópusambandinu. Eigum við ekki að tala um þessa stóru hagsmuni líka?
Sannarlega, og við eigum að tala um lífskjör almennings, komandi kynslóða sem þurfa að borga sömu íbúðina þrisvar í staðinn fyrir einu sinni eins og jafnaldrar þeirra innan Evrópusambandsins. Hér er Miðflokkurinn kominn svo langt út á tún að hann er farinn að tala gegn lægri vöxtum vegna þess að þeir skila ekki neinu. Þannig er hatrið á Evrópusambandinu að Miðflokkurinn gengur gegn lykilhagsmunum nýrrar kynslóðar, gegn hagsmunum almennings, gegn hagsmunum lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Hvar er Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn í umræðunni? Með hinum fáu og stóru, með fyrirtækjunum sem eru búin að færa sig út úr krónunni, með þeim sem græða á háum vöxtum, með þeim sem lifa á fákeppni, með þeim sem byggja rekstur sinn á samkeppnisforskoti vegna fámennis, vegna þeirrar hindrunar sem íslenska krónan er.
Við eigum að taka þennan slag fyrir lýðræðinu, að allir eigi að fá að taka þátt í þessari atkvæðagreiðslu, fyrir hagsmunum barnanna okkar og fyrir samkeppnishæfni atvinnulífsins. Það verður bara að fá að segja þessa sögu tæpitungulaust í þessum sal. Það eru nákvæmlega sömu rökin notuð gegn ESB núna og voru notuð gegn EES-samningnum áður, nákvæmlega þau sömu af nákvæmlega sama fólki sem hafði í engu rétt fyrir sér. Þetta var bara hræðsluáróður, það viðurkenna allir núna, og hvað? Já, núna segja Framsóknarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn að EES sé alveg frábært og við eigum að halda okkur við það. En þessir flokkar þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum gagnvart gamla hræðsluáróðrinum sem þeir ætla núna að endurnýta. Eina umhverfisstefnan sem er að finna hjá þeim flokkum er að endurnýta hræðsluáróðurinn gagnvart EES núna gagnvart ESB.
Talandi um að gera hreint fyrir sínum dyrum þá væri nú ágætt ef Miðflokkurinn myndi gera hreint fyrir sínum dyrum gagnvart því að vera kominn á spenann hjá MAGA-hreyfingunni, að vera kominn í það að hafa áhrif hér með ráðgjafa Nigel Farage í Bretlandi á íslensk innanríkismál. Ef Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, væri hérna myndi hann líklega segja: Mér fannst mjög óþægilegt að lesa þetta í erlendum fjölmiðlum. Ég ætla ekki að fullyrða neitt í þessu, ég er bara að biðja Miðflokkinn að gera hreint fyrir sínum dyrum því að hér er verið að segja við okkur: Þessir samningar eru bók sem við megum ekki lesa. Þetta er ferðalag sem við megum ekki fara í. Þetta eru upplýsingar sem við megum ekki sjá vegna þess að þessir gömlu valdaflokkar ætla að hafa vit fyrir þjóðinni. (Forseti hringir.) Þeir vilja ekki þjóðaratkvæðagreiðslu vegna þess að þeir treysta sér ekki. Þeir treysta ekki þjóðinni til að sjá þann samning sem út úr því gæti komið. (Forseti hringir.) Þeir treysta því ekki.