157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:43]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að skýra spurninguna aðeins betur. Það er mjög hjálplegt. Ég held að þetta skipti rosalega miklu máli. Ég held að þetta sé alveg útpælt, hvernig skipting ráðuneyta hefur farið fram. Viðreisn hefur — má maður segja hreðjatak hér í pontu? Viðreisn hefur að mínu viti tögl og hagldir utan um stærstu málin. Ef þjóðin segir já fer Viðreisn með utanríkismálin, sjávarútvegsmálin, landbúnaðarmálin, orkuna og bara þannig að það sé sagt þá er utanríkisþjónustan byrjuð að stilla upp. Utanríkisþjónustan er byrjuð að stilla upp. Ég ætla ekki að fara nánar út í það en hún er byrjuð að stilla upp ef út í aðildarviðræður verður farið. Það er byrjað að stilla upp þar, bara þannig að því sé komið á framfæri.