157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:44]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir einlæga ræðu. Hún fór hér nokkuð víða. Hún nefndi m.a. í ræðu sinni bændur og húsnæði. Mig langar til að forvitnast aðeins og horfa t.d. á bændastéttina. Það birtist í morgun, ef ég man rétt, ágætisgrein frá Ernu Bjarnadóttur sem hefur aðeins fjallað um landbúnaðarmál og ESB, og var held ég líka á Bylgjunni, og hún varpaði upp þeirri stöðu að miðað við hvernig smásölu háttar á Íslandi gæti einn erlendur aðili ákveðið að koma hér inn, t.d. í eggjaframleiðslu, og vera hér með lægstu verðin yfir einhvern ákveðinn tíma sem þyrfti til þess að slátra íslenskum eggjabændum. Við erum svo lítil í stóra samhenginu. Ég spyr því hv. þingmann: Hefur hann engar áhyggjur af því að í smæð okkar felist ákveðin vandamál tengt því, t.d. eins og hér var nefnt með stóra framleiðendur?