157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:51]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir svarið. Hv. þingmaður vill ekki fá svör frá Brussel, frá ESB, þess efnis að það séu engar varanlegar undanþágur frá regluverki ESB. Hún vill ekki senda bréf vegna þess að hún vill ekki kalla fram þá augljósu afstöðu Evrópusambandsins að það séu engar varanlegar undanþágur frá regluverki ESB. Það er skýrt, hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir vill ekki fá þau svör frá ESB að það séu engar varanlegar undanþágur frá regluverkinu. Þá bara vitum við það.

Mig langar að spyrja hv. þingmann til viðbótar: Það voru nokkrir kaflar sem voru ekki opnaðir síðast. Hv. þingmaður spurði hvort það væru kannski upplýsingar sem þjóðin mætti ekki sjá og ég hef spurt mig að því sama. Mig langar að spyrja þingmanninn: Býr hún yfir þeim upplýsingum hver opnunarskilyrðin voru, t.d. á köflunum um landbúnað og sjávarútveg, þegar viðræðunum lauk síðast? Ég hef ekki þær upplýsingar hvers vegna þessir kaflar voru ekki opnaðir en ég geri ráð fyrir að Ísland hafi ekki uppfyllt skilyrðin frá ESB fyrir opnun.