þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar. Mér þykir hún hafa gengið talsvert langt í að leggja mér orð í munn, að ég vilji ekki eitt og ég vilji ekki annað. Ég er bara ekkert í þeirri stöðu að vilja þetta eða vilja hitt hvað þetta varðar. En varðandi kaflana og það allt þá hefur þessi umræða, eins og ég kom inn á í ræðu minni, verið eins og bakgrunnshávaði í mínu lífi. Ég hef hvorki verið að dýfa mér mikið í fyrri aðildarviðræður né er ég sérstaklega djúpt inni í þessu núna. Ég er bara svolítið eins og fólk þarna úti, ég vil fá að vita hvað þetta þýðir. Hvernig einhverjir kaflar æxluðust þá, ég bara veit það ekki. Ég veit bara að það á að vanda sig, það á að gera þetta vel og fara ofan í saumana á þessu; byrja á erfiðu köflunum og ná þeim fram og klára þetta þannig. Þetta er bara það sem ég veit.