157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:54]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu sem að langmestu leyti hefur verið málefnaleg, að mestu leyti málefnaleg. Mig langar að byrja, herra forseti, bara rétt svo ég gleymi því ekki, að nefna það sem hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson nefndi talsvert í sínu erindi áðan og raunar fleiri hv. þingmenn hafa komið aðeins inn á, þennan punkt sem varðar svarmöguleikana sem eru skrifaðir inn í þessa þingsályktunartillögu og taka undir þær áhyggjur sem hv. þingmenn hafa viðrað hvað varðar þessa svarmöguleika. Ég held að það liggi algerlega fyrir að verði svarhlutfallið hærra á jáinu eigi að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þá fer það ferli bara í gang, sú aðlögun, og innleiðingar hefjast á breytingum á regluverki hér um leið og það samtal byrjar. Þannig lýsir EBS sjálft aðlögunarferlinu.

Hins vegar er þetta ekki eins ljóst varðandi neiið að því leyti að það er ekkert sem segir að ef niðurstaðan yrði nei fari ekki af stað svona hringekja þar sem það kemur bara ný tillaga aftur og aftur nema orðalaginu yrði breytt í þá veru að það væri t.d.: Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu, hætta ber viðræðum og aðlögunarferli, og hnykkja á því formlega að Ísland hafi dregið umsókn sína til baka. Þetta er augljós valkostur fyrir þá sem eru andvígir málinu en hann er ekki eins augljós eins og orðavalið er í tillögunni eins og hún liggur fyrir.

Mig langar líka örstutt að vekja máls á þessari orðræðu sem mér þykir alltaf svolítið skondin, sem einhver frasameistari hefur fundið upp sem hefur verið hlynntur, óháð þessari atkvæðagreiðslu, inngöngu Íslands í Evrópusambandið, það er þetta að eiga sæti við borðið. Eins vel og þetta hljómar nú þá yrðu þetta u.þ.b. sex sæti af 700. Það er sirkabát hálfur þingmaður. Ef þjóðin hefði verið spurð á einhverjum tímapunkti hvort við, einhverjir fulltrúar hér, vildum eiga hálfan þingmann þá held ég að það hefði ekki kallað fram eins sterk viðbrögð og frasinn um að eiga sæti við borðið. Myndin er enn svartari ef við lítum svo á ráðherraráðið, hvaða sæti við eigum við það borð. Það er 0,08%. Þessir útreikningar verða ekki rengdir. Þetta er ekki spurning um skoðun, já eða nei, þetta eru bara útreikningar á hlutföllunum miðað við þær reglur sem gilda hjá ESB og mér finnst esðlilegt að halda til haga, eins og mér hefur þótt eðlilegt, sem komið hefur fram hjá öðrum hv. þingmönnum hér, að kostnaður við veru í ESB sé strax dreginn upp á yfirborðið því það hlýtur að hafa áhrif á skoðanir fólks á því hvort það vill halda áfram með aðildarviðræður að Evrópusambandinu og þá jafnhliða kostnaður við þær aðlögunarviðræður.

Annað sem ég hefði gjarnan viljað nefna, herra forseti, varðar það — þó að umræðan hafi verið heilt yfir málefnaleg með örlítilli undantekningu, heilt yfir hefur mér þótt hún ágæt og upplýsandi — að treysta ekki þjóðinni eða vera hrædd við þjóðina. Þetta er svolítið gildishlaðið, jafnvel mjög gildishlaðið, án þess að þýða í raun og veru eitthvað, þetta þýðir í raun og veru ekki neitt. Þjóðin spurði ítrekað í aðdraganda síðustu alþingiskosninga um stefnu allra stjórnmálaflokka, um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Sumir flokkar voru alveg skýrir hvað þeirra afstöðu varðaði. Þeir skýrustu voru líklega annars vegar þeir flokkar sem eru andvígir og hafa frá stofnun verið andvígir aðildarviðræðum og ég tala nú ekki um inngöngu. Svo var kannski einn flokkur sem hefur eiginlega frá stofnun verið hlynntur því og ég held að það sé meira að segja skrifað inn í stefnu viðkomandi flokks, en tók svolítið óvænta stefnu í kosningabaráttunni. Það var flokkur hæstv. forsætisráðherra. Þar fór hæstv. forsætisráðherra fram og breytti talsvert mikið áherslum síns flokks í nálgun sinni á Evrópumálin. Mig langar að vitna í þau orð, af því að hér hefur verið talsvert gert af því að vitna í einhver ummæli, sum jafnvel mjög gömul, en þessi eru hins vegar ekkert mjög gömul. Þetta eru ummæli frá 27. ágúst 2024 og þar segir hæstv. forsætisráðherra, með leyfi forseta:

„Í Evrópumálum hef ég verið mjög skýr á því, að ég tel ekki að þetta sé tíminn til að fara í þá vegferð. Mér finnst mikilvægara að sameina jafnaðarfólk um atriði sem eru í nærumhverfi okkar akkúrat núna. […] Þetta er mjög stór breyting fyrir íslenskt samfélag og þú verður að vera með ofboðslega sterkt umboð til verka og þú getur ekki verið með einn til tvo stjórnmálaflokka sem ætla að leiða það verkefni.“

Ég veit ekki hversu mikið skýrara það getur verið. Mér er ljós vilji Viðreisnar enda flokkurinn hreinlega stofnaður um þetta verkefni. En ég veit ekki hversu mikið skýrari orð í kosningabaráttu og kosningaloforð geta orðið heldur en þetta. Þetta er óvenjuafdráttarlaus stefnubreyting og yfirlýsing, í það minnsta, svo ég túlki það mjög varfærið, á þeirri tímalínu sem hæstv. forsætisráðherra sá fyrir sér í aðdraganda kosninga.

Síðan þykir mér það örlítið kúnstugt, herra forseti, í þessari ágætu umræðu hér að það virðist ekki sama hver vitnar í hvern eða hvenær ummæli féllu. Hér var í upphafi umræðunnar talsvert vitnað í Stefan Füle. Síðan var það gjaldfellt því hann væri hættur störfum sem stækkunarstjóri ESB. Þá var bara vitnað í Mörtu Kos sem er núverandi stækkunarstjóri. Þá er það ekki nógu góð tilvitnun vegna þess að það er dregið í efa að þar hafi verið alveg rétt eftir haft, þrátt fyrir ágæta norskukunnáttu þingmanna margra og að tilvitnunin hafi líka verið þýdd yfir á ensku og enskukunnátta hér í salnum er almennt ágæt held ég. Þá er vitnað í Heather Grabbe, sérfræðing hjá Bruegel-hugveitunni í Brussel, sem fullyrti í viðtali sem birtist í Ríkissjónvarpinu, og er þar af leiðandi aðgengilegt öllum landsmönnum, að það er ekkert sem heitir varanleg undanþága. Það eru hins vegar sérlausnir. Þetta virðist hljóma sem alger músík í eyrum þeirra sem eru áhugasamastir um þetta ferli en svo við útskýringu á þessum sérlausnum kemur greinilega fram að sérlausnirnar fela í sér mestan part tímabundna aðlögun. Hún getur þó varað í nokkur ár þar sem er um stærri málaflokka að ræða, þá fá þjóðirnar nokkur ár til að aðlaga sig að fullu regluverki Evrópusambandsins.

Þessar ábendingar hafa meira og minna, herra forseti, allar verið slegnar út af borðinu hér sem einhver hræðsluáróður. En þær eru meðal annarra upplýsinga sem mér þykir bara rétt að allir landsmenn hafi áður en þeir ganga að þessu borði sem virðist vera búið að hantera í umræðunni (Forseti hringir.) sem einhvers konar hlaðborð sem verður svo hægt að velja sér einhverja rétti af.