þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Fyrst örstutt varðandi vangaveltur um hvernig spurningin er orðuð: Sá sem hér stendur er ekki sá eini sem hefur bent á þennan vankant á uppsetningunni því það væri miklu eðlilegra að þeir sem velji neiið fái miklu ítarlegri upplýsingar um hvað það þýði til lengri framtíðar. Það liggur fyrir hvað það þýðir til lengri framtíðar ef þú segir já.
Varðandi spurningar hv. þingmanns um að ef upp kemur já, hvort sá sem hér stendur, og þá væntanlega Miðflokkurinn, muni virða niðurstöðuna, hvernig við munum beita okkur í umræðunni og hvort við munum reyna að stöðva það að atkvæðagreiðsla fari fram; Nei, hv. þingmaður, ég veit ekki alveg hvaðan svona hugmyndir koma í raun og veru. Auðvitað virðum við niðurstöðuna. Við munum hins vegar, hv. þingmaður, og hann getur treyst því, berjast af fullu afli í því að afla upplýsinga fyrir þá sem ætla sér svo á kjörstað. Það hefur ítrekað verið gagnrýnt hér að þær upplýsingar sem við erum að fá séu svo villandi og svo misvísandi að það er bara hreinlega dónaskapur að mati þess sem hér stendur að ætla almennum kjósanda, sem liggur ekki yfir pólitískri umræðu frá degi til dags eða les allar pólitískar greinar í blöðum — sem ég hygg að meginþorri þjóðarinnar stundi ekki, ég held að áhorfið á þessa rás hér til að mynda séu nokkur þúsund — og við munum reyna að tryggja með einhverjum hætti að fólk fái þær upplýsingar sem þurfa að liggja fyrir áður en við göngum að kjörborðinu.