157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:08]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þekki ágætlega til hv. þm. Gríms Grímssonar. Hann er vanur rannsóknarmaður. Hann hefur notið mikillar virðingar í því starfi. Slíkt er áunnið, það er ekki eitthvað sem er keypt úr hillu. Rannsókn snýr yfirleitt að því að afla upplýsinga svo að saksóknari og dómstólar hafi sem gleggstar upplýsingar til að byggja mögulega málsókn á og síðan niðurstöðu. Hann kom inn á það þegar tekin var ákvörðun um það, einmitt af okkur saman, ég fyrir hans áeggjan og fleiri, að senda fulltrúa til Europol til að vanda betur til rannsókna. Þetta hefur skilað sér vel. Í ljósi reynslu hv. þingmanns verð ég að spyrja, virðulegur forseti, hvort honum finnist ekki eðlilegt og nauðsynlegt að krefjast frekari upplýsinga og að þingið skili gleggri upplýsingum úr sinni vinnu til þjóðarinnar um hvað hér er undir, (Forseti hringir.) um hvað Evrópusambandið snýst um og hverjar staðreyndir mála eru.