157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:20]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir hans andsvar. Ég trúi því að það sé enginn sem muni fara í þessa atkvæðagreiðslu af léttúð. Auðvitað mun fólk þurfa að velta fyrir sér: Ef ég segi já, hvað þá? Því er haldið fram að það þurfi meiri upplýsingar fyrir fólk til að taka ákvörðun um það. Ég tel að það þurfi ekki. Ég tel að það sé alveg skýrt að seinni samningurinn, verði hann til, það verði sagt já og til verði annar samningur, þá verði það samningur sem fólk getur tekið afstöðu til, efnislega afstöðu. Hvað er það sem leiðir til þess að hv. þingmenn hér trúa því að þeir séu eitthvað betur til þess fallnir og séu trúverðugri heldur en þau sem hér standa eða sá sem hér stendur til þess að leiða fólk áfram? Af hverju ættu þeir sem eru fylgjandi þessari atkvæðagreiðslu og eftir atvikum að sækja um aðild að Evrópusambandinu að vilja fórna auðlindum? (Forseti hringir.) Hvernig dettur einhverjum í hug að þingmenn hér á þjóðþinginu vilji fórna auðlindunum fyrir eitthvert samband?