þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hans andsvar. Hann spyr hvort ég viti að við þurfum að stofna til einhverra nýrra stofnana og aðlaga okkur að reglum Evrópusambandsins. Ég held að á þessum tímapunkti, Ísland verandi hluti af EES, þá höfum við þegar aðlagað okkur að mjög stórum hluta af reglum Evrópusambandsins í gegnum þann samning. Við höfðum samanburðinn. Samanburðurinn er að einhverju leyti 2009–2013 þegar farið var í þessar aðildarviðræður sem gengu eins og þær gengu. Ég man ekkert sérstaklega eftir því að það hafi verið settar á stofn einhverjar tilteknar stofnanir til þess að aðlaga okkur að Evrópusambandinu umfram þær stofnanir sem þegar voru hér starfandi. Ég á ekki skýrt svar við spurningunni en ég held að þetta sé að einhverju leyti ofmælt, að við þurfum að stofna til nýrrar stofnunar til að aðlaga okkur á samningstímabilinu.