157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:07]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir sína ræðu og skil vel að ræðutíminn í fyrri umferð er takmarkaður. Hann er reyndar enn styttri í þeirri seinni en allt í góðu. Við erum hér í fyrri umræðu um mjög mikilvægt mál. Hv. þingmaður nefndi í sinni ræðu að henni fyndist sérkennilegt hvernig málið var kynnt. Ég verð að taka undir það og því miður hef ég áhyggjur af upptakti að einhverjum óþarfa feluleik hvað málið varðar. Ef ég tek dæmi þá var hæstv. forsætisráðherra hér í óundirbúnum fyrirspurnum þann sextánda síðasta mánaðar þar sem hún sagði m.a. að hún hefði í samtölum sínum við háttvirta aðila innan Evrópusambandsins komist að því að það væri um eitthvað að semja. Það þarf auðvitað að útskýra fyrir þingi og þjóð hvað hún á við. Sama á við um hæstv. utanríkisráðherra þegar þingsályktunartillagan var kynnt á blaðamannafundi og hún var spurð eftir fundinn hvort hún hefði átt samtöl við Evrópusambandið, embættismenn þar inni, og hvort hún væri tilbúin til þess að upplýsa það. Nú man ég ekki nákvæmlega orðrétt hvernig það var orðað en svarið man ég að hún sagðist ekki ætla að gefa upp vegna þess að það gæti skaðað grundvöllinn sem viðræðurnar myndu byggja á. Við erum að hefja þessa vegferð og þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann: Er ekki bara eðlilegt að við fáum öll þessi mál upp á borðið núna strax þegar málið fer inn í utanríkismálanefnd, ef við þurfum þess, helst fyrr, til þess einmitt, og vegna þess að við treystum þjóðinni, að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun?