157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:12]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég skal reyna að vera stuttorður og innan tímamarka. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þessi umræða hefur vakið upp fjölmargar spurningar í huga mér. Ég held að það sé gott. Til þess erum við að ræða málið.

En varðandi auðlindirnar; eðlilega eru þær eitt af því fyrsta sem ég myndi halda að íslenska þjóðin þurfi að velta fyrir sér og við áttum slíkt samtal við hæstv. utanríkisráðherra í gær. Hún var innt eftir því líka í Silfrinu í gær hvort hún væri tilbúin til að skrifa undir samning þar sem við myndum afsala okkur yfirráðum yfir auðlindunum. Hún sagðist ekki vera tilbúin til þess að gera það að neinu leyti. Þannig skildi ég hana og eflaust fleiri líka. Þetta er auðvitað grundvallaratriðið til að komast inn í Evrópusambandið. Þess vegna myndi ég halda að væri miklu hreinlegra, og ég vil spyrja hv. þingmann hvort hún taki ekki undir með mér, hvort það sé ekki hreinlegra að leita eftir (Forseti hringir.) þessum svörum strax til að fólk hafi betri upplýsingar þegar það þarf að gera upp hug sinn þegar kosið verður hér um málið.