þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og einmitt ágætt að koma með orðið hræðsluáróður því stjórnarliðar hafa sakað stjórnarandstæðinga um mikinn hræðsluáróður í dag. Ég er sammála hv. þingmanni hvað það varðar að í greinargerðinni er 1. kaflinn inngangur, sem er bara örstuttur, svo er aðkoma þjóðarinnar að viðræðuferlinu í kafla 2, og í kafla 3 er staða Íslands og áskorun í breyttum heimi – samstarf ríkja. Þetta er nefnilega í rauninni fyrsti efnislegi punkturinn þar sem þessi ríkisstjórn er að færa rök fyrir mikilvægi þess að fara í þessar viðræður. Það er að mínu viti hræðsluáróður. Ég er búin að segja það nokkrum sinnum í þessari pontu í gegnum þetta ár að við eigum að fræða en ekki hræða. Hér hafa þingmenn Samfylkingarinnar, ég nefni sérstaklega hv. þm. Dag B. Eggertsson, komið hingað upp einmitt með þessa rökræðu, að nú séu tímar þannig í alþjóðasamskiptum að nú þurfum við að sækja undir verndarvæng Evrópusambandsins. Því er ég algjörlega ósammála, algjörlega ósammála. Með því er ég ekki að segja að við eigum að loka á Evrópusambandið og ekkert að vinna með Evrópusambandinu, alls ekki. Við eigum mjög víðtækt og gott samstarf við Evrópusambandið, bæði í gegnum EES-samninginn en líka ýmislegt annað og ég vil halda því áfram.
Virðulegur forseti. Ég hjó líka eftir því í þessum kafla einmitt sem heitir Staða Íslands og áskoranir í breyttum heimi að þar segir í lokin, með leyfi forseta:
„Um það snýst þjóðaratkvæðagreiðslan sem hér er lögð til. Einungis með niðurstöðu í aðildarviðræðum, sem kjósendur taka svo afstöðu til, verður leitt í ljós hvernig aðild að ESB getur hjálpað okkur að takast á við þessi brýnu viðfangsefni.“
Ég spyr: Voru þingmenn Flokks fólksins og ráðherrar þeirra með í þessu? Taka þau undir þetta? Flokkurinn sem hefur lýst því yfir að þau vilji alls ekki ganga í Evrópusambandið. Formaðurinn sem sagði nei, nei, nei við samningsmarkmiðunum sem þó eru skrifuð inn í þessa þingsályktun? Voru þau meðvituð um þessa setningu sem hæstv. utanríkisráðherra setur inn, um að það þurfi að fara í þessa kosningu og einungis með niðurstöðu í aðildarviðræðum komi í ljós hvort ESB geti hjálpað okkur með þessi brýnu viðfangsefni?