þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Eitt sem ég hef verið að hugsa um í dag er fjarvera ráðherra okkar hérna í þingsalnum. Það var aðeins tekist á um það í gær hvort um væri að ræða utanríkismál eða innanríkismál. Gott og vel. Málið er að fara til utanríkismálanefndar og það liggur í hlutarins eðli að það eru eiginlega allir þættir undir hvað þetta stóra mál varðar en ég vænti þess að ágætir hæstv. ráðherrar verði hér við síðari umræðu málsins.
Það liggur fyrir að Framsókn telur hagsmunum okkar betur borgið utan Evrópusambandsins. Það hefur legið fyrir lengi. En veruleikinn er sá að nú erum við á ákveðnum krossgötum. Ríkisstjórnin hefur boðað þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst um hvort Ísland skuli hefja á ný aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu. Ég endurtek: aðlögunarviðræður. Þetta er borið upp við þjóðina eins og við séum að spyrja okkur hvort við viljum kannski kíkja aðeins í pakkann, hlutlægt, sakleysislegt. Við treystum þjóðinni, segja forystumenn ríkisstjórnarinnar. Ég efast ekkert um það. Ég treysti þjóðinni líka. Ég held að allir hér inni treysti þjóðinni. En við skulum vera heiðarleg í umræðunni. Þetta er ekki spurning um pakkaafmæli með brauðtertum og rjómatertum. Þetta er stór spurning um framtíð landsins, framtíð þar sem við hingað til höfum valið að vera utan Evrópusambandsins.
Ég vill leggja áherslu á það, virðulegi forseti, að við tölum um kjarna málsins. Hvað gerist ef við segjum já og hvað gerist ef við segjum nei í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu? Ef við segjum já þá þurfum við að byrja á því að uppfylla opnunarskilyrði hjá ESB. Þau geta auðvitað falið í sér framlagningu aðlögunaráætlunar, mögulega uppbyggingu eftirlitsstofnana en síðast en ekki síst þurfum við að samræma okkur Evrópulöggjöfinni ef íslensk lög og evrópsk lög stangast á. Þetta er samt sem áður bara í mínum huga eitt skref en virðist strax vera misskilið af mörgum. Það er jafnvel það óskýrt að þingflokkur demókrata á Evrópuþinginu orðaði það með berum orðum á samfélagsmiðlum skömmu eftir að þingsályktunartillagan var kynnt fyrir þjóðinni, þannig, og hér kemur þýðing, með leyfi forseta: Ísland mun halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort ganga skuli í Evrópusambandið þann 29. ágúst. Hvort ganga skuli í Evrópusambandið. Þegar jafnvel kjörnir aðilar í Brussel túlka þjóðaratkvæðagreiðsluna þannig og hæstv. atvinnuvegaráðherra líkar við færsluna með svokölluðum þumli þá er ekki skrýtið að fólk reki upp stór augu. Þess vegna er svo mikilvægt að við tölum hér um kjarna málsins. Ég vænti þess að við munum gera það í þessari umræðu og ekki síst í hv. utanríkismálanefnd.
Ríkisstjórnin hefur lofað þjóðinni að við fáum að kanna hvort hægt sé að semja um sérstakar undanþágur og ég heyri ekki betur á hæstv. ráðherrum en að þau hafi mikla sannfæringu fyrir því, þannig tala þau. Þar undir eru orkuauðlindir, fiskveiðiauðlindin, vatnið og mögulegar auðlindir sem við kunnum að finna í okkar lögsögu. Hæstv. utanríkisráðherra sagði það berum orðum sjálf að hún myndi ekki skrifa undir afsal á forræði Íslendinga um sjávarútvegsauðlindina. En hér kemur líka vandinn: Sérfræðingarnir í stækkunarmálum ESB hafa staðfest ótvírætt og afdráttarlaust að ESB veitir engar varanlegar undanþágur frá meginregluverki sínu. 95% af regluverkinu er með öllu óhagganlegt. Það eina sem hægt er að semja um eru tímafrestir, hvenær full innleiðing á sér stað, ekki hvort hún eigi sér stað.
En gott og vel. Það kann vel að vera að fólk vilji samt kjósa um aðlögunarviðræður og ég ætla að standa með þeim rétti. Ég veit aftur á móti að ef þú sækir um aðild að klúbbi þá þarftu að una öllum þeim reglum sem þar eru undir og ég held, virðulegi forseti, að hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. forsætisráðherra viti það líka. Þess vegna er eðlilegt að spyrja: Ef utanríkisráðherra er sjálf ekki tilbúin til þess að skrifa undir þann samning sem þessar viðræður geta leitt af sér, hvers vegna vill hún þá fara í aðlögunarviðræður yfirhöfuð?
Svo sætir það furðu, virðulegi forseti, að ríkisstjórnin noti orðið framhald eins og eitthvað hafi verið í gangi hérna á undanförnum árum. Það liggur alveg fyrir að viðræðum var hætt á sínum tíma, að mig minnir 2013, samninganefndir voru leystar upp. Þáverandi utanríkisráðherra tilkynnti ESB formlega um lok viðræðnanna. Síðan hefur Ísland ekki verið á lista umsóknarríkja ESB. En á þessum 13 árum hefur Ísland og okkur reyndar aldrei gengið betur, mun betur en ESB, en það er kannski efni í aðra ræðu. Við þetta er að bæta að meira að segja utanríkisráðuneytið sjálft sagði opinberlega að Ísland hefði dregið umsókn sína til baka. Ég skil það þannig að þetta séu sem sagt einhvers konar framhaldsviðræður. Gott og vel, þetta virðast vera framhalds nýjar aðildarviðræður, byggðar á gömlum grunni Jóhönnustjórnarinnar frá 2009. En eins og ég segi, heimurinn hefur breyst.
Það er annað sem ég hnaut um í þingsályktunartillögunni og það er tímasetningin. Hvers vegna 29. ágúst þegar við erum öll í sumarleyfi? Af hverju að leggja málið hér fram tveimur og hálfum mánuði fyrir sveitarstjórnarkosningar? Það sætir mikilli furðu því að við vitum það öll að það hafa engin stærri mál verið rædd eða fá stærri mál sem hafa verið rædd hér á Alþingi en möguleg innganga í Evrópusambandið. Það hefur varla komið neinum á óvart að það myndi yfirtaka alla umræðu í samfélaginu og mér þykir það miður því fram undan eru sveitarstjórnarkosningar og mér hefði þótt meiri bragur á því að koma með þetta mál inn í þingið eftir þær kosningar, leyfa sveitarstjórnarfólkinu okkar að eiga sviðið um þjónustu í nærumhverfinu. En, nei. Er það gert til þess að Evrópuflokkarnir geti rætt um Evrópusambandið í sveitarstjórnarkosningum? Mér finnst undarlega að farið, virðulegi forseti.
Ég er einn af þeim sem vilja kynna sér málið vel og ég vil kynna mér aðlögunarviðræðurnar og hvernig ríkisstjórnin mun halda á þeim málum. Ég er aðeins efins. Veruleikinn er sá að Kristrún Frostadóttir, hæstv. forsætisráðherra, sagði fyrir kosningar, með leyfi forseta: „Ég er mjög meðvituð um það að það að ganga í Evrópusambandið er verkefni sem þorri þjóðarinnar verður að standa á bak við.“ Hún sagði að þetta þyrfti að koma frá grasrót, atvinnurekendum og verkalýðshreyfingu, það væru ekki allir á einu máli.
Skoðum aðeins stöðuna. Það eru engin merki um að þorri þjóðarinnar standi á bak við aðild að Evrópusambandinu. Ekki hefur verkalýðshreyfingin gefið neitt út um það. Svo virðist, a.m.k. þegar skoðaðar eru skoðanakannanir, að öflugustu samtök atvinnurekenda séu hreinlega á móti inngöngu. Ekki er meiri hluti á Alþingi. Það er ekki einu sinni meiri hluti í ríkisstjórn hæstv. forsætisráðherra því Flokkur fólksins stendur gegn inngöngu. Þannig að ekkert af þeim skilyrðum sem hæstv. forsætisráðherra lagði sjálf til eru til staðar. Þetta er hrein og klár uppgjöf í mínum huga. Ríkisstjórnin er í vandræðum með verðbólguna. Hún er í vandræðum með vaxtastigið. Hún er í vandræðum með samgönguáætlun, bókun 35, tengingu bóta við launavísitölu og fleira og fleira. Og nú, í stað þess að taka á þeim málum, velur hún að kveikja eld undir Evrópuumræðunni og leita þar skjóls. (Forseti hringir.) Þetta er ekki forysta, þetta er flótti. Þetta er ekki sókn, þetta er ótti.