157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:16]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar og tek heils hugar undir með honum. Það vekur hreinlega upp spurningar, eins og ég kom inn á í ræðu minni, af hverju ríkisstjórnin kýs að segja ekkert um þessi atriði í öllu þessu ferli þegar þetta eru aðalatriði máls. Hvernig á hinn óbreytti ágæti borgari þessa lands, sem er alla jafna upptekinn af því að sækja börnin sín í skóla og elda hakk og spaghettí, að vita hvort hann vilji að fulltrúar íslensku ríkisstjórnarinnar setjist við samningaborðið í Brussel og gæti hagsmuna hans ef hann hefur enga hugmynd um í hverju þeir hagsmunir eru fólgnir, hefur enga hugmynd um hver rauða línan er við það samningaborð. Ekki hugmynd. Að kalla það að treysta þjóðinni eru ofboðsleg öfugmæli.