þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar. Ég held að það sé ekkert hægt að draga neina aðra ályktun en að samningsmarkmiðin, þessi tæplega 15 ára gömlu samningsmarkmið, haldi. Það er áhugavert því að þessi ríkisstjórn hefur verið á harðahlaupum frá þeirri staðreynd að vinstri stjórnin hin síðari sé hérna við völd en einhverra hluta vegna er hún til í að feta í sömu fótspor í þessu máli. Við hljótum að spyrja okkur hvort þetta standist skoðun. Við höfum heyrt hæstv. utanríkisráðherra gera að engu orð þáverandi stækkunarstjóra um að það væru engar varanlegar undanþágur að finna í ESB; hún kom hérna og sagði eitthvað á þá leið, með leyfi forseta, að hann væri hættur þannig að það skipti engu máli. En ætlum við samt að halda áfram á þeirri vegferð sem við vorum í þessum viðræðum? Allt er þetta hin mesta furða. Hvað vill íslenska ríkisstjórnin fyrir hönd Íslands? Hvar liggja sársaukamörkin? Hvað er ekki í boði? Segið okkur það. (Forseti hringir.) Þá getur þjóðin svarað því hvort hún vilji gefa þeim tækifæri til þess að láta á það reyna.