þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil í seinna andsvari mínu kannski fá það enn betur á hreint: Er það raunverulega þannig að hv. þingmaður vill frekar spyrja þjóðina: Viltu ganga í Evrópusambandið eða ekki? Og þá ekki með neitt á borðinu, renna hálfblint í sjóinn, t.d. hvað varðar auðlindirnar okkar og margt fleira sem fólki er mjög umhugað um að vera með algjöra tryggingu fyrir? Vill þingmaðurinn virkilega frekar spyrja svona beint, bara helst með engar upplýsingar, en að spyrja hvort þjóðin hafi áhuga á að halda áfram með viðræður vegna þess að umsókn liggur fyrir? Þetta er náttúrlega mjög skrýtið. En spurningin: Viltu ganga í Evrópusambandið? — það er ekki hægt að álykta annað en að það séu meiri líkur á að fólk segi nei við því af því að það er náttúrlega ekki með neitt á borðinu til þess að vega og meta. Það er kannski það sem stjórnarandstaðan er svolítið að hanga í. Það eru meiri líkur á að þjóðin hafni því algjörlega strax en ef hún er spurð: Viljið þið halda áfram með viðræðurnar? Þá er líklegra að það komi mögulega meiri hluti sem segi já — og hvað þá?