þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir hennar ræðu hér áðan. Hún vék talsvert að yfirlýsingum hæstv. forsætisráðherra í sinni ræðu, þ.e. yfirlýsingum hennar fyrir síðustu alþingiskosningar. Þar viðhafði hún vissulega afdráttarlausar yfirlýsingar og ég held að enginn velkist í vafa um hvað sá stjórnmálamaður, sem síðan varð forsætisráðherra landsins, var að meina; að kljúfa ekki þjóðina, að hún vildi ekki efna til þessarar vegferðar núna o.s.frv. Síðan heyrðum við í raun svipaðar yfirlýsingar hjá hæstv. forsætisráðherra í ávarpi hennar nú um áramótin, og ég geri frekar ráð fyrir því að hv. þingmaður hafi verið að horfa á það ávarp, þar sem kom m.a. fram að við eigum að vera samstiga þjóð áfram, við eigum ekki að leyfa neinum að kljúfa okkur og að við eigum að hafna svartagallsrausi um að hin íslenska leið sé ekki lengur fær. Þetta eru afdráttarlausar yfirlýsingar. Sex dögum eftir þetta áramótaávarp kom hæstv. utanríkisráðherra fram í fjölmiðlum og sagði: Þessi þingsályktunartillaga verður lögð fram á þessu þingi. Mig langar að spyrja hv. þingmann, þegar við setjum þetta í samhengi og þessa tímalínu: Hvað telur hv. þingmaður að hafi breyst eftir jafn afdráttarlausar yfirlýsingar, á sex dögum?