þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Í ljósi þess að hv. þingmaður vék orðum að spurningunni sem er óskýr og illa útfærð og beinlínis leiðandi og blekkjandi vil ég nefna að Birgir Ármannsson, fyrrverandi virðulegur forseti Alþingis, skrifaði prýðisgóða grein í Morgunblaðið síðastliðinn laugardag. Hann segir í lokin, með leyfi forseta:
„Í allri umfjöllun fræðimanna og alþjóðasamtaka sem láta sig lýðræðismál varða er lögð áhersla á að spurningar í þjóðaratkvæðagreiðslum séu skýrar, óskilyrtar, hlutlausar og megi ekki vera leiðandi á neinn hátt. Spurningin sem ríkisstjórnin gerir tillögu um uppfyllir ekki þessi skilyrði.“
Blasir ekki við að fyrrverandi virðulegur forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, hittir naglann á höfuðið þarna? Spurningin eins og hún er sett fram uppfyllir ekki þessi grundvallarskilyrði um þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hlýtur þess vegna að koma til alvarlegrar skoðunar í vinnu utanríkismálanefndar, að aflokinni fyrri umræðu og að afloknu umsagnarferli, að gera breytingu á spurningunni.