157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:20]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Í varnarlegu tilliti er svona álíka mikið gagn í því að ganga í Evrópusambandið eins og að skrá sig í húsfélagið í Dúfnahólum 10. Ég held að menn séu algjörlega að misskilja það verkefni sem fyrir liggur ef menn halda að það sé næst í röðinni í varnarlegu tilliti að ganga í Evrópusambandið. Menn geta tínt til ýmis önnur rök en við skulum ekki tína til þau er varða varnir og mögulegan her, sameiginlegan her Evrópu í framtíðinni, hvernig sem það mun nú allt saman spilast. Það er orðið dálítið síðan að einhver þjóð hafði gagn af því að standa í stríði með Frökkum, ég held að enginn hafi fundið sig á þeim stað síðan Napóleon hengdi upp hattinn forðum. Þetta er bara eitt af þessum hálmstráum sem stuðningsmenn þessarar aðildar og aðlögunarviðræðna grípa til. Þessi breytti heimur undirstrikar einmitt mikilvægi varnarsamningsins og mikilvægi veru okkar í NATO. Hann undirstrikar ekki mikilvægi þess að skrá sig í tollabandalag Evrópusambandsins, bara alls ekki. Það verður miklu auðveldara að skrá sig úr húsfélagi Dúfnahóla 10 heldur en Evrópusambandinu. Bretar geta vottað um það. Það er alveg bölvað að skrá sig úr þessum klúbbi. Ef þessi rök eiga að vera einhver kjarnarök aðildarsinna þá óska ég þeim bara góðs gengis. En í þessum efnum skiptir máli að við pössum upp á varnarsamninginn hér eftir sem hingað til, veru okkar í NATO og sinnum okkar verkefnum þar vel. En Evrópusambandið sem einhvers lags aðili í varnarlegu tilliti Íslands — það er mikill misskilningur ef það er nálgun aðildarsinna.