157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:56]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið eða svarið öllu heldur. Í seinna andsvari langar mig að spyrja hv. þingmann út í atriði sem hann kom ekki inn á í ræðu sinni en ég veit að hann hefur ágæta þekkingu á. Því er haldið fram hér ítrekað og forsætisráðherra og utanríkisráðherra segja að við séum 75–80% inni í Evrópusambandinu nú þegar. Hver er skoðun hv. þingmanns á þessari talna- og orðaleikfimi? Það hefur komið mér á óvart hvað fyrirsvarsmenn málsins hafa farið fram með mörg atriði sem er auðvelt að hrekja. Það er eins og þau treysti því að það sé enginn að hlusta eða þá að það bregðist enginn við. Þetta atriði um að við séum 80% þegar inni í Evrópusambandinu; mig langar að spyrja hv. þingmann, sem kannski í og með sem fyrrverandi utanríkisráðherra, um afstöðu hans til þeirrar staðhæfingar.