þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Það vakti athygli mína að hv. þingmaður vildi fara að vinna. Ég stóð í þeirri meiningu að við værum nú að gera það. En vandinn er þessi, virðulegur forseti, að sú nálgun að við séum að gera samning er eitthvað sem Evrópusambandið kannast ekki við. Ef ég hefði skrifað þetta, sem hv. þingmaður sagði, á prófi í stjórnmálafræðideild hef ég verið felldur. (Gripið fram í: Gott að þú ert lögfræðingur.) Ég er ekki lögfræðingur, ég er stjórnmálafræðingur. Ég er hérna með kennslubók sem er um þessi fræði. Ég vil spyrja hv. þingmann: Af hverju vill hv. þingmaður ganga inn? Samfylkingin er ekki fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Þeir vildu ekki þjóðaratkvæði um ESB á sínum tíma, að fara í þessar viðræður. Þeir vildu ekki fara í Icesave, ekki bókun 35 en vilja fara inn núna.
Hv. þingmaður vísaði til finnsku leiðarinnar sem er sú að í sameiginlegu (Forseti hringir.) landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins er þessi grein, að fyrir norðan þessa breiddargráðu þá megi styðja við landbúnað. (Forseti hringir.) Er hv. þingmaður að segja okkur það að hann vilji og Samfylkingin (Forseti hringir.) vilji að við verðum partur af sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni?