þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Ég held að því sé nú fljótsvarað hvað mig varðar þegar kemur að atkvæðagreiðslu, hvort menn ætli að segja já eða nei. Svarið í mínum huga er bara nei og mjög einfalt nei. En ég er hlynntur því að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram. En til þess að hún geti farið fram þurfa að liggja fyrir upplýsingar fyrir kjósendur um hvað sé hugsanlega í boði en ekki bara að kíkja í pakkann. Það er held ég lykilatriði og það er það sem við þurfum að reyna að draga fram í þessari umræðu þó svo að salurinn sé hér fátæklega skipaður stjórnarliðum. Hér eru einungis stjórnarandstæðingar að taka þátt í þessari umræðu … (IngÞ: Halló. ) [Hlátur í þingsal.] — Þarna kemur okkar besti stjórnarþingmaður í Norðausturkjördæmi, Ingvar Þóroddsson, og fylgist með umræðunni, sem er gott. Lykilatriðið er að einhverjar upplýsingar liggi á borðum til að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun. Þær liggja svo sannarlega ekki í þessari þingsályktunartillögu sem hér er rædd í fyrri umferð. Því er mikið verk fyrir höndum hjá hv. utanríkismálanefnd sem tekur málið til umfjöllunar núna, eða væntanlega eftir páska, að kafa ofan í og reyna eftir fremsta megni að útskýra fyrir þjóðinni um hvað hún er að fara að kjósa. Það verður að hafa það í huga og það er gríðarlega mikilvægt að það er lýðræðislegur réttur að segja já og það er lýðræðislegur réttur að segja nei.