157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:31]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgott andsvar sem er að mínu viti þýðingarmikið. Það er lagt upp með að þetta sé einhvers konar ferð án fyrirheita, ferð án nokkurs konar skuldbindinga eða afleiðinga. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að í því felist nokkur afvegaleiðing. Það er bara staðreynd og þetta liggur svo sem fyrir. Það þarf ekki að taka mín orð fyrir því heldur nægir að nefna þetta nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar frá 2009. Það hefur ekkert breyst, ekki nokkur skapaður hlutur. Ef menn telja að svo sé, annað en eitthvert hvísl á milli embættismanna, þá þarf auðvitað að draga það fram.

Umsóknarferlið er nákvæmlega þetta. Það felur í sér að taka upp einstaka kafla og aðlaga íslenskan rétt og íslenskt samfélag að regluverki Evrópusambandsins. Þegar því er lokið þá hefst næsta ferli. Ég held að það væri t.d. alveg áhugavert að halda því líka til haga að eins og þingsályktunartillagan ber réttilega með sér að ef þjóðin segir já við þessari spurningu þá fer ríkisstjórnin í það að ljúka þessu umsóknarferli. Það mun taka lengri tíma en 18 mánuði. En eins og kemur fram í þingsályktunartillögunni sjálfri er gert ráð fyrir því að hún endi með undirritun samnings, þó með fyrirvara um þjóðaratkvæðagreiðslu. Það mun enda þannig, ef orð hæstv. utanríkisráðherra reynast sönn. Eftir 18 mánuði ef umræðurnar ganga jafn vel og haldið er fram þá mun það leiða til einhverrar undirritunar. Allt hefur þetta afleiðingar. Ég held að það sé mikilvægt að menn hafi í huga að það eru einhverjir kostir og gallar, en ræðum þá bara. Við erum ekkert hrædd við það.