þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mér er nokkur vandi á höndum að gera upp við mig hvor er Þór og hvor er Danni, hæstv. forsætisráðherra eða hæstv. utanríkisráðherra úr því við erum komin í þennan ágæta þríleik sem hefur verið með okkur lengi. (Gripið fram í.) Já, ég kunni ekki við að ganga lengra í að tengja karaktera myndarinnar við fyrirsvarsmenn ríkisstjórnarinnar. Ég er ósammála kenningu hv. þingmanns um að ástæða þess að stjórnarliðar mæti ekki til umræðunnar sé sú að þeim raunverulega þyki þetta blasa við með þeim hætti að hver sem er ætti að skilja þetta og að það þurfi ekki að ræða þetta. Mér finnst miklu líklegra og það bendir til að það sé einhver ótti við andsvör hreinlega því það eru einfaldar spurningar sem þarf að spyrja en sem mér segir svo hugur um að býsna margir þingmenn hafi engan áhuga á að standa hér frammi fyrir í pontu og þurfa að svara. Ég held að það sé miklu líklegri ástæða þess að stjórnarliðar komi ekki og tali fyrir málinu lengur því það var umræða í síðustu viku þar sem stjórnarliðar tóku þátt. Síðan hafa liðið einir fimm, sex dagar og þeir eru horfnir. Hvað gerðist í millitíðinni? Það varð samtal í þjóðfélaginu. Það varð samtal þarna úti sem leiddi fram að það eru algerlega grundvallarspurningar sem á eftir að svara. Það var einfaldlega ekki svigrúm á þessum knappa tíma frá því að málið var kynnt á föstudegi þar til umræða hófst á mánudegi til þess að leiða þetta fram. Ég held að þetta sé að einhverju marki það sem stjórnarliðar eru að forðast. Við höfum séð í mörgum öðrum málum síðan þessi ríkisstjórn var skrúfuð saman að stjórnarliðar þegja, þeir bara þegja og þegja og vona að vandinn hverfi.