þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ríkisstjórnin hefur afhent hæstv. utanríkisráðherra stjórnmálaumræðu næstu mánaða. Forystukonur Samfylkingarinnar og Flokks fólksins hafa ekki tekið til máls í þessari umræðu. Ekki einn einasti hæstv. ráðherra stjórnarflokkanna hefur tekið til máls í þessari umræðu, herra forseti, ekki einn einasti. Eini hæstv. ráðherrann sem hefur talað í umræðunni er hæstv. utanríkisráðherra sem mælti fyrir tillögunni, sá eini. Flokkur fólksins er ekki sjáanlegur í umræðunni. Einungis hv. þm. Sigurður Helgi Pálmason hélt ræðu um málið. Allir hinir þingmenn flokksins hafa þagað þunnu hljóði. Er þetta ekki undarlegt, herra forseti? Er eðlilegt að þegja um þetta mál? Á að þegja sig í gegnum þetta mál? Með framlagningu þessarar þingsályktunartillögu hefur ríkisstjórnin gefist upp á þessu verkefni að ná niður vöxtum og verðbólgu í landinu og beinir sjónum að aðild að Evrópusambandinu; þjóðin verður upptekin af því að rífast um umsókn um aðild að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ríkisstjórnin hefur afhent Viðreisn þetta stærsta mál kjörtímabilsins. Hæstv. utanríkisráðherra hefur farið átta ferðir til Brussel og farið hefur vel á með henni og ráðamönnum og -konum þar á bæ, svo vel jafnvel að við fáum fréttirnar um framtíð Íslands fyrst þaðan. Ekki hér á þingi, ekki hér á landi, nei, frá Brussel. Hæstv. utanríkisráðherra fór eina ferð til Washington á dögunum, til þeirrar þjóðar sem við erum með varnarsamning við sem er einn mikilvægasti samningur okkar, en svo lengi hefur samband okkar við ráðamenn þar á bæ legið í láginni að einungis fundir með varamönnum voru þar á dagskrá. Þetta er auðvitað afleitt, herra forseti, og þarf að kippa í lag svo fljótt sem auðið er. Ísland getur ekki treyst á varnir frá Evrópuþjóðum. Það er bara svo einfalt.
Herra forseti. Ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni fyrir mikilsverðum upplýsingum í þessu máli og reynir að breiða yfir augljósar staðreyndir í því. Þar má nefna eðli viðræðnanna sem gætu verið fram undan. Eðli þeirra er að við sækjum um aðild á grundvelli þeirra laga og reglna sem Evrópusambandið býr við og að þeim þurfum við að aðlaga okkur til að geta gengið inn í sambandið. Evrópusambandið er ekki að fara að ganga í Ísland, þeir eru að fara að taka okkur inn í sitt ríkjasamband sem er þúsund sinnum fjölmennara en þessi þjóð.
Annað er að það eru engar varanlegar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins. Það er staðreynd sem ríkisstjórnin neitar að treysta þjóðinni fyrir og viðurkennir ekki. Ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni fyrir þeim upplýsingum að íslenskur sjávarútvegur og landbúnaður munu falla undir sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins og einu undantekningarnar þar eru þeir tímafrestir sem við gætum hugsanlega fengið á þeirri aðlögun. Þessum upplýsingum treystir ríkisstjórnin þjóðinni ekki fyrir. Sama má segja um landamærin, þau treysta ekki þjóðinni fyrir þeim upplýsingum að gæsla landamæranna yrði að samrýmast reglum Evrópusambandsins en ekki íslenskum hagsmunum á hverjum tíma. Hún treystir ekki þjóðinni fyrir þeim upplýsingum að árleg framlög Íslands til Evrópusambandsins munu hlaupa á tugum milljarða króna, enda yrðum við með auðugustu ríkjum sambandsins. Með lævísum hætti, eða frekar mætti kalla það aðdróttun, koma þeir með þessa innantómu yfirlýsingu um að þeir treysti þjóðinni og leitast þannig við að smækka þá sem vilja allar upplýsingar og samningsmarkmið Íslands upp á borðið. Þar er þó einungis verið að breiða yfir að þeir haldi villandi upplýsingum að þjóðinni um málið.
Herra forseti. Hver eru samningsmarkmið Íslands? Hvar getur fólk fundið stefnu ríkisstjórnar hvað það varðar, hvað varðar sjávarútvegsauðlindina, orkuauðlindirnar eða landbúnaðinn, fæðuöryggið og heilnæmi innlendrar framleiðslu landbúnaðarafurða? Hvar er þessar upplýsingar að finna í þessum kosningum sem fram undan eru? Nei, ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni fyrir þessum upplýsingum og hæstv. forsætisráðherra svarar spurningum hv. þingmanna um málið með reiðilestri. En treystir þjóðin Viðreisn til að leiða þetta mál á farsælan hátt? (Forseti hringir.) Treystir þjóðin hæstv. utanríkisráðherra til að skipa samninganefnd í viðræðum við Evrópusambandið? Ráðherrann tilkynnti okkur stolt í haust um skertan hlut okkar til veiða í makrílstofninum. (Forseti hringir.) Munu kjósendur treysta hæstv. utanríkisráðherra Viðreisnar til að leiða komandi biðraðir eftir að hún taldi verndartolla Evrópusambandsins sem á okkur eru lagðar í haust ásættanlega niðurstöðu?