þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég er sammála hv. þingmanni um að spurningin er óskýr. Ég vil fá að taka það hér fram að þegar var kosið til stjórnlagaþings þá ógilti Hæstiréttur Íslands kosningu til stjórnlagaþings þar sem spurningin þótti ekki tæk. Þannig að það er mjög mikilvægt að sú spurning sem hér verður lögð fyrir þjóðina verði borin undir aðra til að fá úr því skorið að hún sé marktæk. Þess vegna legg ég til að leitað verði til Feneyjanefndarinnar hvað það varðar.
Hv. þingmaður spyr einnig hvernig hæstv. ríkisstjórn ætlar að fara með það umboð sem hún fær væntanlega í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég verð bara að játa mig sigraða í að svara þeirri spurningu. Rétt eins og hv. þingmaður sagði hér áðan þá er lítið um svör. Við höfum hér síðustu daga ítrekað reynt að fá það hér upp úr stjórnarliðum eða ráðherrum ríkisstjórnar hvernig fyrirkomulagið á að vera og því er ekki svarað. Að halda áfram viðræðum, eins og spurningin er núna, gefur ekki rétta mynd af þeirri stöðu sem Ísland er í þar sem engar viðræður hafa verið í gangi. Þeim var hætt. Við höfum ekki verið með gilda aðildarumsókn. Við höfum ekki verið á heimasíðu Evrópusambandsins. Þessum umræðum var hætt á sínum tíma. Ég ætla að fá að nota seinni tímann til að svara betur um lífeyrissjóðina.