157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:02]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Frú forseti. Óveðursskýin hrannast upp yfir Íslandi í dag í efnahagsmálum. Það var dökkur dagur í dag þegar stýrivextir hækkuðu úr 7,25% í 7,5%. Stýrivextir eru að hækka, verðbólga er að aukast og atvinnuleysi er það mesta sem hefur sést síðan í heimsfaraldri. Núna í dag var seðlabankastjóri að vara þingheim við því að klára og afgreiða málið um launavísitölutengingu almannatrygginga. Hann varaði við því og sagði að það yrði verðbólguhvetjandi, myndi kynda verðbólgubálið. Það er líklega ekki að ástæðulausu að það mál sem var klárað hér í 3. umræðu í gær er ekki hér á dagskrá akkúrat þegar stýrivextir eru að hækka.

Virðulegur forseti. Ég tel að hv. stjórnarþingmenn verði að hugsa sig vel um þegar þetta mál kemur til atkvæðagreiðslu.