157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:21]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Um fundarstjórn forseta: Það er svo sem ekki óalgengt að menn fari kannski eitthvað aðeins út af sporinu í þessum lið og að forseti geri þá eftir föngum athugasemdir við hv. þingmenn, séu þeir sannarlega ekki að ræða fundarstjórn hæstv. forseta. Eins gerði hv. þm. Guðmundur Sigurjónsson það að kvarta undan því áðan að hér væru menn alls ekki að ræða fundarstjórn forseta. Ég er að hugsa um að fara í talgreininn, frú forseti, því að ég gat ekki heyrt betur en að ræða hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar hafi alls ekkert snúist um fundarstjórn forseta en þá hafi hæstv. forseti hins vegar ekki séð ástæðu til að gera athugasemdir við það hvernig sá liður var nýttur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)