157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:22]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Ég finn ástæðu til að koma aftur upp í fundarstjórn vegna ummæla sem féllu hér hjá hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni. Þetta hefur verið viðkvæðið síðasta árið hjá hv. þingmanni. Það er eins og ekkert hafi gerst á árunum 2019–2024. Það er bara eins og ekkert hafi gerst. Það er eins og WOW air hafi ekki fallið 2019. Það er ekki eins og Covid hafi hafist hér í mars 2020. Úkraínustríðið, aðfangakeðjurnar rofnuðu í febrúar 2022, Grindavíkureldar. Þetta er svo óþolandi umræða hjá hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni, hvernig þessi blekking er látin ganga endalaust áfram. En það sem er að gerast núna varðandi þetta vaxtahækkunarferli sem hófst í morgun, og hefði getað orðið enn verra, er búið til af núverandi ríkisstjórn. Þetta var fyrirséð og við ræddum í síðustu fjárlögum að það lægi fyrir að þetta væri að fara að gerast með hækkun skatta, vörugjalda og annað.