hækkun stýrivaxta.
Frú forseti. Hæstv. forsætisráðherra hefur sagt að hún muni mögulega ræða efnahagsmálin eftir páska og koma með eitthvert útspil. Útspil hljómar fyrir mér alltaf eins og eitthvert „gimmik“, en þetta eru hennar orð og mér finnst það óboðlegt fyrir þing og þjóð að þetta verði ekki rætt hér í þessum þingsal fyrr en eftir páska.
Ég ætlaði ekki að koma upp þegar hæstv. forseti sagðist vera búinn að hlýða á þessa beiðni 11 sinnum. Síðan þá eru sennilega komnar 11 aðrar ræður og ég hef ekki heyrt nein viðbrögð frá forseta, þannig að ég tek undir með þeim þingmönnum sem óska eftir því að efnahagsmálin verði sett á dagskrá eftir vendingar dagsins.