áhrif loftgæða í Reykjavík á útivist leikskólabarna.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að vekja athygli á þessu mikilvæga máli og hæstv. ráðherra fyrir að vera hér með okkur. Það skiptir miklu máli að börnin geti verið úti í sem flestum veðrum. Það skapast mikil mengunarhætta hér við ákveðnar aðstæður. Þetta er ekki eitthvað sem er léttvægt heldur eru bæði börn og eldra fólk útsett fyrir töluverðri hættu. Í þessu ryki sem myndast, bæði vegna bremsubúnaðs bíla og upp úr malbiki og steypu, eru þungmálmar. Þungmálmar fara ekki úr líkamanum heldur safnast fyrir í fituvef þannig að þeir eru í líkamanum eftir að þú tekur þá inn. Það sem er líka hættulegt við þetta er örfínt sót sem minnkar upptöku súrefnis í lungum og fer út í blóðið. (Forseti hringir.) Það er til mikils að vinna að gera eitthvað róttækt í þessu og það á a.m.k. að þvo göturnar oftar en einu sinni á ári.