157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

helmingamokstur.

430. mál
[16:43]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Ingvar Þóroddsson) (V):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra Eyjólfi Ármannssyni kærlega fyrir hans svar við fyrirspurninni og sömuleiðis þeim þingmönnum sem lögðu hér orð í belg. Ég fæ kannski að taka upp hanskann fyrir hæstv. ráðherra í kjölfar orða hv. þm. Þorgríms Sigmundssonar um sameiningu sveitarfélaga. Ég lagði ekki sama skilning í ræðu hæstv. ráðherra, að hann væri hér með einhverjum hætti að blanda sameiningu sveitarfélaga inn í málið. Ég fagna því að hæstv. ráðherra segir hér að hann sé til í að skoða það að koma til móts við minni sveitarfélög þar sem umfang helmingamoksturs vega er talsvert mikið. Í fyrri svörum hæstv. ráðherra kemur t.d. fram, af því að hér var nefnt sveitarfélagið Þingeyjarsveit sem er mjög fámennt sveitarfélag en jafnframt það allra stærsta á landinu að flatarmáli, að þar erum við að tala um talsvert mikinn kostnað sem fellur á sveitarfélagið vegna helmingamoksturs. Hæstv. ráðherra sagði að það myndi auðvitað felast í því kostnaður að taka yfir helmingamokstur en þó sé ég ekki að það sé um verulegan kostnað að ræða. Um er að ræða 290 millj. kr. á seinustu þremur árum og þetta hefur verið eitthvað í kringum 60–80 millj. kr. á ári hverju að jafnaði, þannig að það mætti alla vega skoða þá vegi sem í dag er sinnt samkvæmt reglu um helmingamokstur þar sem svo sannarlega fer fram skólaakstur. Það hefur verið stór hluti af áhyggjum þessara sveitarfélaga, að það sé skólaakstur á þessum vegum. Það er helmingamokstur og Vegagerðin virðist ekki kannast við ábyrgð sína á hálkuvörnum á þeim vegum og það, eins og þessi sveitarfélög hafa bent á, virðist ekki vera í samræmi við umferðarlög. Ég myndi vilja hvetja hæstv. ráðherra til að setja alla vega þá vegi í forgang og í þeim sveitarfélögum sem eru fámenn en þar sem umfang helmingamoksturs er mikið. En ég þakka hæstv. ráðherra fyrir og hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni.