157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

stæðiskort.

434. mál
[17:03]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda aftur fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli. Lögin eru skýr, það er rétt. Það segir í 2. mgr. 87. gr. umferðarlaga að handhafi stæðiskorts hafi heimild til að leggja ökutæki í gjaldskylt stæði án sérstakrar greiðslu. Þetta er afdráttarlaus regla. Það sem við höfum verið að skoða er það hvort tilefni sé til aðgerða svo að sjálfvirkt kerfi rekstraraðila gjaldskyldra bílastæða geti greint stæðiskort hreyfihamlaðra. Þá er spurning hvort veita eigi rekstraraðilunum aðgang að upplýsingum úr skrá yfir handhafa stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða. Þá er spurningin þessi: Getur hreyfihamlaður einstaklingur gefið samþykki til stjórnvalda um það að veita rekstraraðilum aðgang að þessum skrám?

Það er líka fræðilega hægt að spyrja sig að því hvort þetta séu samskipti milli þess sem er með bílastæðin, rekur bílastæðin, rukkar fyrir bílastæðin og hreyfihamlaðra, að þeir geti veitt samþykki sitt og sýnt fram á það og sagt: Ég er hreyfihamlaður og vil að þú skráir nafnið mitt niður og veitir mér alltaf aðgang að gjaldfrjálsu stæði vegna þess að ég er með heimild til þess samkvæmt lögum.

Þetta er spurning um útfærslu sem er í samræmi við persónuverndarlög sem skiptir öllu máli hér. Að mínu mati er það alveg klárt að rekstraraðilanum ber að tryggja að starfsemi hans brjóti ekki í bága við lög. Hvaða leið verður farin? Það á eftir að skýrast betur en ég vitna til þess sem sýslumannaráð taldi, að það væri þörf á lagabreytingu ef þau ættu að vinna þessar upplýsingar og telja hæpið að hægt sé að gera það á grundvelli þessa samþykkis til stjórnvalda. En við skulum skoða það betur.

Ég hyggst koma með lausn í frumvarpi til laga um breytingu á umferðarlögum sem ég mun líklega mæla fyrir í haust. Þá mun verða skýrt ákvæði sem mun taka á þessu vandamáli en það er þessi spurning um persónuverndarákvæðið, hvort samþykki sé nægilegt til að listarnir fari til þessara fyrirtækja.

Ég vil þakka fyrir umræðuna. Þetta er mikilvæg umræða og virkileg hvatning til þess að gera eitthvað í málunum.