157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

stofnun nýs innviðafélags.

437. mál
[17:06]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M):

Virðulegur forseti. Fyrir tveimur dögum var lagt fram frumvarp um nýtt innviðafélag sem svarar að einhverju leyti þeim spurningum sem ég sendi inn í febrúar og eru hér til umræðu í dag. Í því ljósi treysti ég að ráðherra komi hér með svar með meira kjöti á beinunum en kemur fram með frumvarpinu svo þessi fyrirspurn nýtist betur. Að því sögðu þakka ég ráðherra fyrir að vera hér til svara í dag.

Það er óhætt að segja að hugmyndin að nýju innviðafélagi sé mjög spennandi. Víða hefur slíkt tekist vel til en sporin hræða þegar kemur að ríkisstjórn Íslands því þau eru góð í að segja eitt en gera annað, pakka hlutum fínt inn en svo er innihaldið kannski aðeins of rýrt. Það sem er hins vegar alveg á hreinu í mínum huga er að nýtt innviðafélag má ekki verða bara enn ein ríkisstofnunin og það verður að vera á hreinu að skattar verði lækkaðir á móti nýjum veggjöldum. Það þýðir ekki að skattleggja bifreiðaeigendur upp í rjáfur og að veggjöld verði svo bara hrein viðbót. Við stofnun nýs innviðafélags verður tilfærsla á fjármunum svo mér þætti vænt um að heyra skýrt frá ráðherra í dag hvort ekki standi til að lækka skatta á bifreiðaeigendur samhliða nýjum veggjöldum.

Spurningarnar sem ég sendi á ráðherra voru fimm talsins:

1. Hvernig verður fjármögnun nýs innviðafélags, sem ráðherra hefur kynnt áform um að stofna, háttað? Í því samhengi velti ég fyrir mér: Er það ekki á hreinu að markmiðið sé að minnka fjármagnsbindingu ríkissjóðs í félögum sem eru í innviðum og ná fram hagkvæmari rekstri? Er ekki líka á hreinu að það verði passað upp á með réttum aðgerðum að draga að erlenda fjárfestingu í umrædd verkefni? Það er nefnilega alveg á hreinu að það er nægt framboð af fjármagni í innviðaverkefni en vanda þarf til verka.

2. Hvaða eignir kemur til greina að setja inn í innviðafélagið? Verða það bara þegar byggð samgöngumannvirki eða er áætlað að setja aðrar eignir inn í félagið að öllu leyti eða hluta, til að mynda Isavia, Landsvirkjun eða önnur félög?

3. Mun hið nýja félag stofna og halda utan um smærri innviðafélög og þá hvert verkefni fyrir sig? Þarna væri líka áhugavert að heyra nánar hvernig ráðherra hyggst útfæra óarðbæru innviðafélögin sem eru þó mögulega samfélagslega arðbær.

4. Undir hvaða ráðherra mun hið nýja innviðafélag heyra? Þessu hefur verið svarað í frumvarpinu en sporin hræða þegar kemur að samvinnu þessara tveggja ráðuneyta. Mun val á samgönguverkefnum færast að mestu til hæstv. fjármálaráðherra Viðreisnar?

5. Hverjar eru frekari áætlanir um boðað innviðafélag, t.d. tímarammi? Í því samhengi velti ég fyrir mér hvenær áætlað er að félagið verði að veruleika og fyrstu framkvæmdir hefjist.