sauðfjárbúskapur.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu um mikilvægt atriði. Það er auðvitað þyngra en tárum taki að sauðfé hafi fækkað með þeim hætti sem lýst hefur verið hér á undan og að nú sé sauðfé orðið færra en landsmenn. En það verður líka að gæta þess að aðgerðir ríkisstjórnarinnar á hverjum tíma, og nú þeirrar sem við búum við, verði þess ekki valdandi að sauðfé verði færra en Valsmenn, svo að ég noti líkingu vitandi hver bakgrunnur hæstv. ráðherra er í íþróttum. (Gripið fram í.) Það má deila um það, segir Skagamaðurinn. En þótt ég segi þetta í gríni er þetta alvarlegt, alvarlegur undirtónn. Starfsskilyrði bænda hafa þróast með þeim hætti að sennilega myndi ekki nokkur önnur stétt geta búið við þá stöðu og sætt sig við hana og lifað með henni. Ég bara hvet hæstv. ráðherra til að nálgast þá vinnu sem fram undan er með þeim hætti að forsvaranleg rekstrarskilyrði verði til staðar fyrir bændur landsins og þá sérstaklega og ekki síst sauðfjárbændur sem hafa búið við alveg hrikalega þróun rekstrarskilyrða sinna um áratugaskeið.