157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[19:04]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Það er rétt, frú forseti, og mig langar einmitt til að koma inn á fundarstjórn forseta. Hér í umræðunni um það hefur svolítið borið á því að það hafi verið ákveðnir þingflokksformenn meirihlutaflokkanna sem hafi á einhvern hátt misskilið þau samskipti sem áttu sér stað milli þingflokksformanna. Ég vil þá í því samhengi benda á að forseti hóf fund á því að lesa upp að dregin hefði verið til baka ósk um að greiða atkvæði um lengd þingfundar. Hafi misskilningurinn einhvern veginn verið í þá átt þá er misskilningurinn ekki einungis þingflokksformanna meiri hlutans heldur líka forseta því að einhverjar ástæður eru fyrir því að forseti hafi litið svo á að búið væri að draga þá ósk til baka.