157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

114. mál
[11:14]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta er ekki gott mál. Þetta mál leysir ekkert varðandi húsnæðismálin. Þetta mál er ekkert nema forræðishyggja. Að sjálfsögðu er mikilvægt að bregðast við þegar stór hluti íbúða er kominn í skammtímaleigu. Það er búið að gera það. Það eru nú þegar í gildi lög í landinu sem hamla mjög fólki að stunda skammtímaleigu. Það er eðlilegt að jafna samkeppnisstöðu þannig að þeir sem hafa atvinnu sína af því að eignast íbúðir og leigja þær út greiði gjöld og sæki um svipuð leyfi og hótel og gististaðir. Þetta hérna er bara gerræðisleg tilraun til þess að taka ákvörðunarréttinn af fólki. Já, þú mátt leigja út íbúðina sem þú ert með skráð lögheimili í, þú mátt leigja frístundahúsið þitt, bara eitt, en ef þú átt íbúð í þéttbýli þá máttu alls ekki leigja hana út. Þetta eru innan við 150 íbúðir. Þetta er auðvitað ekki að fara að breyta neinu nema þá helst að ýta þessum löghlýðnu einstaklingum sem hafa sótt um leyfi út í eitthvað ólöglegt. (Forseti hringir.) Þetta er gerræðislegt og það er ótrúlegt að flokkur sem einu sinni kenndi sig við frelsi hafi lagt svona gerræðislegt frumvarp fram.