veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.
Virðulegur forseti. Mig langar til að tjá mig aðeins um þessa aðgerð. Hún er náttúrlega alveg með ólíkindum. Þetta er ekkert annað en forræðishyggja í sinni tærustu mynd. Eins og hefur komið fram í umræðunum og í meðferð þessa máls hafa verið og eru komnar reglur sem koma böndum á þá hluti sem hér er verið að reyna að þrengja enn frekar að. Og að þetta nái yfir jafnvel tæplega 150 fjölskyldur eða íbúðir og að það eigi að taka þennan möguleika af fólki sem hefur með einum eða öðrum hætti eignast aukaíbúð í þéttbýli, það er í rauninni algerlega með ólíkindum. Ég ítreka það að forræðishyggjan gerist ekki hreinni né tærari en þetta. Frelsið og ágengnin á eignarréttinn er með eindæmum með þessari aðgerð.