157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

114. mál
[11:22]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Ég styð þetta mikilvæga mál. Helsti drifkraftur verðbólgu síðustu ára og áratuga hefur verið sú skortstaða sem hefur myndast á húsnæðismarkaði. Hún hefur ekki síður myndast af því að hér hafa tekjulágar fjölskyldur verið að keppa við skammtímaleigu til ferðamanna og geta auðvitað engan veginn staðið undir því miðað við það verð sem þar er í boði. Þetta er auðvitað skref í rétta átt til að ná langtímajafnvægi á húsnæðismarkaði. Mér finnst áhugavert að hlusta hér á hv. þingmenn sem hafa ítrekað kallað eftir aðgerðum — og hvaða aðgerðum? Að vera á móti máli sem sannarlega talar inn í skref í átt að meira jafnvægi á húsnæðismarkaði sem hefur verið helsti drifkraftur verðbólgu síðustu ára og áratuga.