157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

114. mál
[11:23]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég kem bara hérna upp vegna þess að menn láta að því liggja hér að þetta sé gífurlegt hagsmunamál, m.a. fyrir ungt fólk á húsnæðismarkaði. Það má ætla af málflutningnum að markaðurinn eins og hann er sé eitthvert villta vestur. Það er ekki svo. Það eru ríkar takmarkanir nú þegar. Þær eru af hinu góða að mínu mati. En vandinn er í raun og veru, eins og málin munu þróast, ekki ólíklegur til að leysast hægt og rólega án þess að svona harkalega sé gengið fram, þótt sitthvað í þessu frumvarpi sé líka eðlileg ráðstöfun. Ungt fólk — að leyfa heimagistingu bara á lögheimili, eins og gert er í þessu frumvarpi, það er beinlínis sagt í frumvarpinu að ekki sé talið að það muni hafa áhrif á framboð, mögulega á hagsmuni langtímaleigjenda í einhverjum tilvikum en ekki á framboð. Það er vitað fyrir fram þannig að menn geta ekki látið síðan í pontu eins og svo sé. Gott og vel, sýndaraðgerð ef mönnum líður vel með þetta en hlutverk okkar hér er að rýna í efni frumvarpsins og sjá hver raunveruleg áhrif verða. (Forseti hringir.) Þau eru þau að þetta skaðar töluvert margvíslega hagsmuni fjölbreytts hóps sem þó hefur haft þessa leið til að hafa einhvern lágmarksávinning af ferðaþjónustu (Forseti hringir.) sem hefur líka margvísleg önnur misjafnlega góð áhrif á líf okkar. Þarna er hópur sem getur haft þessi jákvæðu áhrif.

(Forseti (ÞSv): Forseti beinir því til þingmanna að virða ræðutímann.)