157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

114. mál
[11:24]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er um gott mál að ræða og sú mynd sem hv. Sjálfstæðis- og Miðflokksþingmenn draga upp af þessu máli er íhugunarefni. Þetta er í rauninni eitt af mörgum málum sem snúast um það að gera húsnæðismarkaðinn betri. Orðfærið sem er notað og hvernig sýn þeirra er á bjargarleysi fólks, að það sé verið að bjarga sér með því að leigja út þriðju íbúðina, það eru áhyggjurnar. Það eru áhyggjur Sjálfstæðisflokksins, hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins, réttur þeirra sem eru að leigja út þriðju íbúð sína. Í rauninni lýsir þetta veruleikafirringu þessara flokka. Það er heimilt að leigja út íbúð í í langtímaleigu. Þetta er ein af þeim aðgerðum sem við erum að grípa til til að gera þennan húsnæðismarkað heilbrigðari. Þeir koma með ýkjusögur um hvað þetta er lítið en samt telja þeir þetta frumvarp vera það hættulegt að þeir telja að hægt sé að hrópa það hér niður.