veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.
Frú forseti. Ef einhver skyldi vera í vafa um afstöðu Viðreisnar og hvar í stafrófinu hún er þá er alveg ljóst að Viðreisn er gengin í björg með Samfylkingunni. Hvaða vandamál er verið að laga, frú forseti? Það er verið að laga vandamál sem að stórum hluta skrifast á athafnaleysi Samfylkingarinnar í Reykjavík. Það er verið að laga vandamál og stefnu Samfylkingarinnar um að byggja óseljanlegar, bílastæðalausar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Það er verið að laga það vandamál. Og að hverju snýr þessi lagfæring? Það á að koma í veg fyrir að 150 manns geti leigt út sínar íbúðir (Gripið fram í.) — aðra íbúð sína, ekki fyrstu, aðra íbúð sína, hv. þm. Sigurjón Þórðarson.