veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.
Forseti. Mér er eiginlega óskiljanlegt að landsbyggðarþingmenn greiði atkvæði með þessu máli en þeir verða að eiga það við sig hver og einn. Þetta er að því er virðist einhver hluti af áformum Samfylkingarinnar í aðdraganda kosninga um að stunda hér gluggagægjur. Ég man ekki hvað þetta var kallað í aðdraganda kosninga en þetta er væntanlega partur af þeim áformum. Þegar þingmenn koma hér upp og segja við fólk sem býr úti á landi og á aðra íbúð sem börn nota að vetri til vegna náms: Þið getið bara leigt þessa íbúð út að sumri til í langtímaleigu. Það eru skilaboðin. Þið þarna á landsbyggðinni sem þurfið að sækja ákveðna þjónustu til höfuðborgarinnar sem ekki er boðið upp á þar, m.a. ákveðið nám unglinga og ungs fólks, þið getið bara að sumri til sett íbúðina ykkar í langtímaleigu. Forsjárhyggjan er svo ótrúleg hjá þessari ríkisstjórn að það tekur ekki nokkru tali.