157. löggjafarþing — 86. fundur,  19. mars 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[14:31]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hann er nú hokinn af reynslu úr þessum geira, ef svo má segja, og þess vegna ætla ég að nota tækifærið hér til að fletta aðeins upp í honum í þessum efnum. Hæstv. dómsmálaráðherra fullyrti að Íslendingar fari í dag seinna á reynslulausn. Það er vísað til 3. mgr. 80. gr. sem kveður á um undanþágu frá þeirri meginreglu að fangar eigi rétt á reynslulausn eftir tvo þriðju afplánunartímans. Það er meginreglan. Svo eru veittar nokkrar undanþágur vegna t.d. ekki alvarlegra brota, þá er miðað við hálfan tíma og það er líka veitt undanþága þrátt fyrir að um alvarlegt brot sé að ræða ef persónulegar ástæður eru fyrir því, líka fyrir þá þar sem liggur fyrir synjun Útlendingastofnunar á dvalarleyfi. En ráðherra fullyrti þetta og ég veit ekkert um það. Það hefur kannski vantað aðeins í þessa greiningu og ég hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að fá frekari tölfræði um þessi efni.

Mig langar að vita hvort hv. þingmaður þekkir dæmi þess þar sem útlendingi sem framið hefur alvarlega glæpi hefur sannanlega verið veitt reynslulausn eftir hálfan tíma afplánunar. Með alvarlegum glæpum er ég að vísa til hreinlega aftökum sem hafa átt sér stað á Íslandi. Það eru dæmi um að mönnum hafi verið veitt reynslulausn á þessum tíma. Þekkir hv. þingmaður það hvort þessum einstaklingum hafi síðan í raun verið brottvísað? Þekkir hv. þingmaður það hvort til er tölfræði yfir það hversu mörgum föngum sem hefur verið veitt reynslulausn hefur síðan raunverulega verið brottvísað í kjölfarið?