réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Í fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 kom fram að stefnt væri að endurskoðun lagaramma um mannauðsmál ríkisins með það að markmiði að gera mannauðsstjórnun betri, búa starfsfólki gott starfsumhverfi og bæta árangur. Fyrsta heildstæða stefna ríkisins um þetta, Mannauður í lykilhlutverki, var gefin út í lok liðins árs. Þar eru sett fram markmið og áherslur sem styðja stefnumiðaða og sveigjanlega mannauðsstjórnun sem skapar eftirsóknarvert starfsumhverfi þar sem hæfni starfsfólks fær notið sín til fulls.
Frumvarpið sem ég mæli hér fyrir er mikilvægur þáttur í framangreindri vinnu og áframhaldandi þróun mannauðsmála hjá ríkinu. Markmiðið er að tryggja framúrskarandi grunnþjónustu í takt við síbreytilegar aðstæður í samfélaginu. Þar gegnir starfsfólk ríkisins lykilhlutverki. Mikilvægt er að vönduð stjórn mannauðsmála skapi þessu mikilvæga starfsfólki heilbrigt og öruggt starfsumhverfi. Það er okkar markmið.
Forseti. Stærsta breytingin sem lögð er til í frumvarpinu felst í því að fella brott skyldu til að áminna starfsmann eða embættismann formlega áður en til uppsagnar eða lausnar um stundarsakir getur komið. Þrátt fyrir afnám áminningarskyldu verður meginreglan sú að starfsfólk hefur tækifæri til að bæta úr því sem miður hefur farið. Það verður gert með leiðbeinandi samtölum eða tilmælum. Vissulega kunna aðstæður að vera þannig að ekki sé hægt að fara þess leið. Mætti þar nefna alvarleg brot, trúnaðarbrot og EKKO-háttsemi á vinnustað. Til skýringar skal rifjað um að EKKO stendur fyrir einelti, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni og ofbeldi.
Forseti Ég vil árétta og taka skýrt fram að ekki er hróflað við þeirri réttarvernd opinbers starfsfólks sem felst í því að ákvarðanir um uppsögn starfsmanns eða lausn embættismanns um stundarsakir eru stjórnvaldsákvarðanir og lúta reglum stjórnsýslulaga. Hins vegar eru undanfarandi samtöl eða tilmæli það ekki. Í þessu samhengi hefur umboðsmaður Alþingis bent á að leiðbeinandi samtal við starfsmann feli hvorki í sér stjórnvaldsákvörðun né ákvörðun um að hefja meðferð stjórnsýslumáls. Þá hefur einnig komið fram af hálfu umboðsmanns að ákvarðanir yfirmanna um hvernig beri að haga störfum hjá stofnun og leysa tiltekin verkefni af hendi lúti almennt að innri málefnum hennar og teljist ekki stjórnvaldsákvarðanir.
Í samræmi við þetta er gert ráð fyrir því að með afnámi áminningarskyldu verði slíkum leiðbeiningum og tilmælum um það sem betur má fara komið á framfæri við starfsmann með samtali en ekki í formi stjórnvaldsákvörðunar. Slík vinnubrögð eru betur til þess fallin að vera gagnkvæmt ferli til úrbóta en ákvörðun um að veita formlega áminningu í skjóli stjórnsýsluvalds.
Með breytingum þeim sem frumvarpið felur í sér er horfið frá íþyngjandi áminningarferli sem getur reynst starfsfólki erfitt og jafnvel niðurlægjandi. Áhersla verður lögð á regluleg samtöl um markmið, væntingar, árangur og þróun í starfi og slíkt verði eðlilegur hluti af störfum bæði starfsfólks og stjórnenda. Skylt er að ákvarðanir séu teknar í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti og byggðar á málefnalegum sjónarmiðum. Áhersla er lögð á uppbyggileg samskipti með skýrum ferlum og skráningum.
Forseti. Aðrar breytingar á ákvæðum starfsmannalaga sem eru lagðar til eru þessar helstar:
1. Felld út skylda til að auglýsa laus embætti í Lögbirtingablaði og það þess í stað gert opinberlega með birtingu auglýsingar á vefsvæði um laus embætti og störf hjá ríkinu.
2. Undanþága er gefin frá auglýsingaskyldu við niðurlagningu/sameiningu stofnana eða flutning verkefna.
3. Laun verði greidd fyrsta dag mánaðar í stað fyrsta virka dags mánaðar. Er það í samræmi við framkvæmd síðastliðinna ára.
Breytingar sem lúta að embættismönnum eru þessar:
1. Setningartími í embætti vegna fjarveru skipaðs embættismanns er lengdur í tvö ár.
2. Heimild er veitt til að setja einstakling í embætti í allt að sex mánuði vegna skipulagsbreytinga eða flutnings skipaðs embættismanns í annað embætti.
3. Sérstök heimild er veitt til tímabundinnar setningar í embætti vegna launalauss leyfis skipaðs embættismanns.
4. Lögmannsþóknun er greidd vegna kostnaðar embættismanns af lögmannsaðstoð við rekstur máls fyrir nefnd sérfróðra manna sem rannsakar lausn um stundarsakir ef niðurstaða nefndarinnar er að rétt sé að hann taki aftur við embætti sínu.
5. Embættismanni verði greidd föst laun í stað helmings af föstum launum á meðan mál hans er rannsakað af nefnd sérfróðra manna en helmingur fastra launa hafi honum verið veitt lausn um stundarsakir vegna gruns um refsiverða háttsemi og sakamál höfðað á hendur honum.
6. Lagfæringar á ákvæði um embættismenn sem taka laun samkvæmt kjarasamningum og tilvísanir til embættisbústaða og jarðnæðis felldar úr lögunum þar sem ríkið útvegar embættismönnum slíkt ekki lengur.
Forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í grófum dráttum. Ég hvet hv. þingmenn til þess að kynna sér frumvarpið vel og ítarlega greinargerð sem því fylgir.
Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.