lengd þingfundar og búnaðarþing.
Frú forseti. Það kann vel að vera að sá tími sem er áætlaður hér í þessa umræðu dugi vel og allir geti hitt bændur á fundum sem ég hygg að flestir flokkar hafi skipulagt um eða upp úr sjö. En það breytir því ekki að bara með því einu að leggja fram tillögu um lengingu þingfundar og afgreiða hana og samþykkja er verið að senda bændastéttinni ákveðin skilaboð. Þau skilaboð eru send núna í fyrsta skipti síðan 1899. Það getur hins vegar vel verið, svo að ég ítreki það, af því að nú er flissað í salnum — það er oft háttur þeirra sem eiga kannski erfitt með að koma og rökstyðja mál sitt; þá er betra að bresta í svona hæðnislegan hlátur. Það getur vel verið að þetta dugi svo að það sé ítrekað, ég veit það ekki. En ég held að forseti viti það ekki heldur, né heldur ráðherrarnir. Þeim er að vísu flestum í sjálfsvald sett hvort þeir hitta bændur eða ekki, en okkur þingmönnum reynist það kannski örðugra ef málið dregst.