Störf þingsins.
Frú forseti. Í gær var búnaðarþing sett, eins og við öll vitum, og um kvöldið buðu flokkar bændum heim í veigar og spjall um það sem liggur bændum á hjarta. Það gerðum við í þingflokki Viðreisnar. Eins og hv. þm. Eydís Ásbjörnsdóttir sagði þá kom einnig upp í samtölum hjá okkur á skrifstofu Viðreisnar fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um Evrópusambandið. Það var talsvert rætt um fjármagnskostnað en eins og við vitum er fjármagnskostnaður eitthvað sem hefur mikil áhrif á bændur. Það er eitt af þeim tækifærum sem ég held að gætu legið í aðild Íslands að Evrópusambandinu, ekki bara fyrir heimili sem eru skuldsett vegna húsnæðiskostnaðar heldur líka til að mynda fyrir bændur. Ég, eins og hv. þm. Eydís Ásbjörnsdóttir, fagna því sem kom fram á búnaðarþingi í gær í ræðu formannsins um það að Bændasamtökin þurfi að koma að borðinu ef til aðildarviðræðna kemur. Ég tek heils hugar undir það og mun jafnframt krefjast þess ef til aðildarviðræðna kemur að Bændasamtökin séu höfð í ráðum.
Ég sat hér í fyrri umræðu um þingsályktunartillöguna og hlýddi á margar ræður um að það sé ekki nógu skýrt hvað eigi að greiða atkvæði um. Ég man eftir að hafa heyrt eina ræðu frá hv. þingmanni, að mig minnir Miðflokksins, sem lagði til að það yrði sent bréf til Brussel til að fá það á hreint hvað sé hægt að semja um og hvað ekki. Síðan verð ég, líkt og Grímur Grímsson, að fá að bregðast við ræðu hv. þm. Þorgríms Sigmundssonar sem kom hér upp og gerði það tortryggilegt að hæstv. utanríkisráðherra — ég held að ég sé að orða þetta rétt — hafi átt í ýmsum viðræðum við ráðamenn í ESB í Brussel, bæði með formlegum og óformlegum hætti. Það fer ekki alltaf saman hljóð og mynd hjá hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar þegar að Evrópumálunum kemur.