breytingar og úrræði í leikskólamálum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurnina. Var hæstv. forsætisráðherra að plata? Nei, hæstv. forsætisráðherra er venjulega alltaf af hug og hjarta að fylgja eftir sínum stefnumálum og síns flokks, eðli málsins samkvæmt. Hvort Samfylkingin kýs að forsætisráðherra komi fram í Kópavogi, hvert erum við eiginlega komin? Það er aldrei að vita nema ég eigi eftir að poppa hérna uppi á Austurvelli til að reyna að aðstoða Flokk fólksins í kosningabaráttunni í Reykjavík. Hver veit, hv. þingmaður. Ég meina, það er ekkert sem segir að við getum ekki hjálpast að og gert það sem þurfa þykir til þess að ná eyrum þeirra sem við viljum ná eyrum hjá. En eins og ég benti á áðan, hv. þingmaður, er stefna Samfylkingarinnar og Flokks fólksins ekki sú sama í borginni hvað lýtur að leikskólamálum og það liggur alveg fyrir að við munum fylgja eftir okkar stefnu og þau sinni. Síðan kemur það bara í ljós þegar við teljum upp úr kjörkössunum hvernig það verður. Við eigum í farsælu samstarfi og ég ætla að vona að við höldum því bara áfram hönd í hönd hér eftir sem hingað til, hv. þingmaður.