fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir spurninguna. Ég er alltaf pínulítið hissa á þessu, að það sé ekki markmið að ná hallaleysi af því að afgangurinn sé svo lítill. Mjór er mikils vísir, hv. þingmaður, og einhvers staðar verður að byrja á þessari vegferð. Ég kannast ekki við neina ferð sem lýkur sem ekki hefst á einu skrefi þannig að ég skil ekki alveg röksemdafærsluna.
Varðandi samgöngumálin þá veit hv. þingmaður að í fjárlögum bæði 2025 og 2026 voru verulegar viðbætur í samgöngumál og að þær halda sér. Síðan til viðbótar veit hv. þingmaður af umræðu hér í salnum að til stendur að stofna innviðafélag sem á einmitt að taka að sér stærri verkefni þar, þannig að þar kemur líka þessi vilji fram. Ég vil þó sérstaklega benda á fjárfestingarstig ríkisins sem liggur að verulegu leyti ekki alveg fyrir í hvað verður ráðstafað á þessum tímapunkti. Við vitum hvað það fer í á þessu ári og á næsta ári en eftir það er stærri og stærri hluti af því einfaldlega vistaður undir safnliðnum fjárfestingar sem heldur sér í 2% af vergri landsframleiðslu og er á tímabili fjármálaáætlunar rúmir 400 milljarðar. Þar munum við sjá myndina skýrast eftir því sem tímanum vindur fram og við vitum nákvæmlega hvaða verkefni verður ráðist í.